|
Velkomin að Skálafelli í Suðursveit.
Skálafell er austasti bær Suðursveitar í Sveitarfélaginu Hornafirði. Í skjóli fjalla og jökla hefur þar verið starfrækt ferðaþjónusta frá árinu 1999. Við leggjum kapp á góða og persónulega þjónustu í fallegu og rólegu umhverfi sem bíður upp á margvíslega afþreyingu
Við erum staðsett mitt á milli Hafnar í Hornafirði og Jökulsárlóns, um 45 km. frá hvorum stað. Þjóðvegur 1 liggur við bæinn og aðeins eru 3 km. að fjallvegi 985 (f 985) að Skálafellsjökli.
Gisti- og ferðaþjónustan Skálafelli er aðili að Ferðaþjónustu bænda.
|